Annað minningarmótið um Jón Þorsteinsson

Jón ÞorsteinssonMinningarmót um Jón Þorsteinsson skákmeistara, lögfræðing og alþingismann fer fram 21. og 22. febrúar nk. í Menntaskólanum við Hamrahlíð. Jón, sem lést árið 1994, hefði orðið 85 ára 21. febrúar nk. ef hann hefði lifað. Afar góð verðlaun eru í boði en heildarverðlaun nema um 600.000 krónum. Taflfélag Reykjavíkur og Taflfélagið Hellir standa fyrir mótinu í samvinnu við syni Jóns.

Gera má ráð fyrir að flestir sterkustu skákmenn þjóðarinnar taki þátt í mótinu. Ekki verður teflt frá upphafsstöðu heldur mun sérstök mótsnefnd velja 9 upphafsstöður sem tefldar verða í hverri umferð og verður upphafsstaðan kynnt í upphafi hverrar umferðar. Þetta er sama fyrirkomulag og var í fyrsta minningarmótinu um Jón Þorsteinsson. Alls verða tefldar 9 umferðir, fimmtán mínútur á hvern keppanda, og verða tvær skákir tefldar í hverri umferð svo allir fá hvítt og svart með hverja upphafsstöðu. Stöðurnar verða valdar með það í huga að „teóríuhestarnir" hafi ekki of mikið forskot á aðra og jafnframt reyni á hæfileika manna til að tefla mjög ólíkar stöður.

Taflið hefst á laugardeginum kl. 14 og verða þá tefldar 4 umferðir. Taflið á sunnudeginum hefst kl. 13 og verða þá tefldar 5 síðustu umferðirnar.

Þátttökugjald er kr. 1.000 fyrir fullorðna en kr. 500 fyrir 15 ára og yngri. Skráningarform má finna efst á síðunni.   Lista yfir skráða keppendur má finna hér.

Æviágrip á Jóns má finna á heimasíðu Alþingis

Verðlaun:

Almenn verðlaun (allir):

1. 150.000
2. 100.000
3. 75.000
4. 50.000
5. 25.000

Margvísleg aukaverðlaun er í boði:

Skákstig 1901-2200:

1. 22.000
2. 20.000

Skákstig 1601-1900:

1. 19.000
2. 17.000

1600 skákstig og minna:

1. 16.000
2. 14.000

50 ára og eldri:

1. 20.000
2. 15.000

16 ára og yngri (fædd 1993 og síðar):

1. 15.000
2. 10.000

Aukaverðlaun fyrir flesta 2-0 sigra:

1. 30.000

Öll verðlaun skiptast séu 2 eða fleiri jafnir.


« Síðasta færsla

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Minningarmót um Jón Þorsteinsson/Jon Thorsteinsson Memorial

Höfundur

Hellir og TR
Hellir og TR
Minningarmót um Jón Þorsteinsson / Jón Þorsteinsson Memorial Tournament

Færsluflokkar

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • Jón Þorsteinsson

Nota bene

Minningarmót um Jón Þorsteinsson / Jón Þorsteinsson Memorial

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband